Flutningaþjónusta

LandflutningabíllLandflutningar-Samskip hafa byggt upp einstakt kerfi á Íslandi með fjölda flutningabíla í þéttriðnu þjónustuneti sem nær til allra byggðarlaga. Miðstöðin er í Reykjavík en afgreiðslustaðir eru í öllum landsfjórðungum auk umboðsmanna um land allt.

Heildarlausnir í flutningum

Landflutningar-Samskip bjóða viðskiptavinum sínum upp á heildarlausnir í flutningum. Þéttriðið þjónustunet býður upp á vöruflutninga hvert á land sem er og sendibílar okkar sjá um heimsendingar á stökum sendingum eða reglulega sendibílaþjónustu eftir þörfum hvers viðskiptavinar. Einnig er boðið upp á vörudreifingarþjónustu. Þá er vörum safnað frá birgjum og dreift til viðskiptavina þeirra.

Oft þarf að senda vörur í miklu magni og bjóða Landflutningar-Samskip þá upp á lausnir í heilförmum. Boðið er upp á 20 eða 40 feta gáma eða önnur sértæk flutningatæki.

Sérfræðingar í matvælaflutningum

avextir_027Hjá Landflutningum-Samskipum teljum við að allir eigi að geta gengið að ferskum matvælum vísum, hvar sem þeir búa. Bílar og vörugeymslur Landflutninga taka sérstaklega mið af þessu með háþróuðum kæli- og frystibúnaði sem tryggir að varan kemst alltaf fersk til móttakanda.

Búslóðaflutningar

Landflutningar-Samskip bjóða upp á heildarlausnir í flutningum á búslóðum. Annars vegar er hægt að senda bústlóðina í gámum eða í lausavöruflutningum með áætlunarferðum.


Útlit síðu:


banner12

Þetta vefsvæði byggir á Eplica