Búslóðaflutningar innanlands

Alhliða þjónusta

buslodirLandflutningar-Samskip bjóða upp á búslóðaflutninga innanlands. Allir flutningar fara fram landleiðina með fullkomnum bílaflota fyrirtækisins. Boðið er upp á flutninga frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar á landinu sem er.

Verðlagning búslóðaflutninga er mismunandi eftir því hvaðan og hvert verið er að flytja. Einnig fer hún eftir því hvort um gáma- eða lausavöruflutninga er að ræða.

Beiðni um tilboð í búslóðaflutning.

Umfang búslóðar

Boðið er upp á flutning í heilum gámum í tveimur stærðum, 20 ft og 40 ft. Einnig taka Landflutningar - Samskip að sér að flytja búslóðina lausa í flutningabílum. Þegar þannig er flutt er ávallt meiri hætta á hnjaski þar sem hvert stykki er meðhöndlað oftar en ef um gámaflutning er að ræða. Rétt er að miða pökkun og frágang við það.

Hægt er að fá hugmynd um umfang búslóðar á þar tilgerðu reiknilíkani. Endanlegt umfang reiknast þó ávallt við móttöku vöru.

Flutningur/Pökkun

Í öllum tilfellum er nauðsynlegt að ganga mjög vel frá búslóðinni og pakka sem mestu í kassa og setja pappa eða þykkt plast utan um húsgögn og tæki. Á stærri hlutum þarf að hlífa öllum hornum. Ef búslóð er flutt laus í flutningabílum þá þarf að merkja alla hluti vandlega.

Tryggingar

Allar vörur sem fluttar eru með Landflutningum-Samskipum eru tryggðar.  Miðast tryggingaverndin við verðmæti varnings allt að kr. 10.000.000. Fari verðmæti vöru upp fyrir kr. 10.000.000 þarf að tryggja þær sérstaklega. 

Hér eru skilmálar farmtrygginga í innanlandsflutningi.

Bókun flutnings

Þegar flutningur er pantaður þarf að gefa upp brottfarar- og áfangastað og hvort um flutning í heilum gámum eða lausavöru er að ræða. Einnig þarf að taka fram hvort óskað er eftir að búslóðin sé sótt og hvort óskað er eftir heimakstri á áfangastað. Ef pantaður er flutningur í lausavöru þá þarf að liggja fyrir umfang (rúmmál) búslóðarinnar.

Óskið eftir tilboði í flutning, einnig er hægt að hafa samband við þjónustufulltrúa okkar í Reykjavík eða rekstrastjóra á brottfararstað búslóðar.

 


Útlit síðu:


banner9

Þetta vefsvæði byggir á Eplica