Þjónusta fyrir fyrirtæki
Heildarlausnir í flutningum
Landflutningar-Samskip bjóða viðskiptavinum sínum upp á heildarlausnir í flutningum. Þéttriðið þjónustunet býður upp á vöruflutninga hvert á land sem er og sendibílar okkar sjá um heimsendingar á stökum sendingum eða reglulega sendibílaþjónustu eftir þörfum hvers viðskiptavinar. Einnig er boðið upp á vörudreifingarþjónustu. Þá er vörum safnað frá birgjum og dreift til viðskiptavina þeirra.
Oft þarf að senda vörur í miklu magni og bjóða Landflutningar-Samskip þá upp á lausnir í heilförmum. Boðið er upp á 20 eða 40 feta gáma eða önnur sértæk flutningatæki.
Sérfræðingar í matvælaflutningum
Hjá Landflutningum-Samskipum teljum við að allir eigi að geta gengið að ferskum matvælum vísum, hvar sem þeir búa. Bílar og vörugeymslur Landflutninga taka sérstaklega mið af þessu með háþróuðum kæli- og frystibúnaði sem tryggir að varan kemst alltaf fersk til móttakanda.
Hafið samband við viðskiptastjóra ef óskað er eftir upplýsingum eða tilboði í flutning.
Afgreiðslur Landflutninga-Samskipa eru að finna um allt land.
Nýjung: Komutilkynningar í tölvupósti
Nú er hægt er að fá komutilkynningar sendar í tölvupósti. Ef þú hefur áhuga á að nýta þér þann möguleika vinsamlega sendu okkur tölvupóst á thjonustudeild@landflutningar.is

