Heilfarmar
Landflutningar-Samskip bjóða viðskiptavinum upp á flutninga á heilförmum sem teljast heil eða hálf flutningstæki. Um er að ræða flutninga á 20 eða 40 feta gámaeiningum, heilförmum í kassabílum, flatvögnum eða öðrum sértækum flutningum sem krefjast stærri flutningstækja.
Starfsfólk Landflutninga-Samskipa býr yfir sérþekkingu og veitir ráðgjöf við lausn á flóknum flutningsvandamálum og framkvæmd þeirra. Vinsamlega hafið samband við viðskiptastjóra til að fá nánari upplýsingar um verð og þjónustu.

