Vörudreifing

463-6367_IMGLandflutningar-Samskip bjóða viðskiptavinum upp á vörudreifingarþjónustu. Vörum er safnað frá birgjum og henni dreift til viðskiptavina þeirra og er um tvenns konar þjónustu að ræða. Annars vegar dreifingu á ferskum matvörum en þá er vörum frá fleiri en einum birgja safnað saman og þeim ekið til viðskiptavina. Hins vegar er um sérhæfðar lausnir að ræða þar sem þjónustan er aðlöguð að þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig. Boðið er upp á vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu og á helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.

Snemma morguns er varan meðhöndluð og flokkuð í vöruhúsi okkar svo hún verði tilbúin til dreifingar í verslanir tímanlega. Daglega keyra 11 sendibílar vörum í u.þ.b. 20 verslanir á höfuðborgarsvæðinu og tryggja að ný og fersk vara sé komin í verslanir þegar þær opna dyr sínar fyrir viðskiptavinum.

Til að fá nánari upplýsingar um vörudreifingarþjónustu Landflutninga-Samskipa, vinsamlega hafið samband við viðskiptastjóra okkar.


Útlit síðu:


banner12

Þetta vefsvæði byggir á Eplica