Vöruflutningar

trukkur2Landflutningar-Samskip bjóða upp á alhliða flutningaþjónustu innanlands. Sú þjónusta felur í sér alla almenna flutninga á vörum, búslóðum, heilförmum, gámum og heimakstri á vörum o.fl.

Sérfræðingar í flutningum

Með vel útbúnum flutningabílum geta Landflutningar-Samskip tryggt viðskiptavinum sínum skjóta og örugga afhendingu á vörum hvert á land sem er. Leitast er við að fyrirtækið sé í fararbroddi hvað varðar vöruflutninga innanlands. Starfað er eftir kröfum GÁMES og er starfsfólk Landflutninga-Samskipa þjálfað í meðferð og flutningi á hættulegum efnum. Auk þess eru strangar kröfur gerðar til öryggis á þjóðvegum. Háþróaður kæli- og frystibúnaður í bílum og vörugeymslum okkar tryggja að mætvæli kemst alltaf fersk til móttakanda hvar á landi sem er.

Hafið samband

Viðskiptastjórar Landflutninga-Samskipa sérhæfa sig í samninga- og tilboðsgerð til viðskiptavina og veita ráðgjöf um allt er viðkemur flutningum innanlands. Þjónustufulltrúar veita upplýsingar um vörusendingar, reikninga eða annað sem viðskiptavinir þurfa að vita um sendingar sínar.


Útlit síðu:


banner5

Þetta vefsvæði byggir á Eplica