Flutningaskilmálar Landvara

Skilmálar um flutning í vöruflutningum á landi.


Stjórn TSL, Trygginga- og þróunarsjóðs Landvara, hefur samþykkt flutningaskilmála þessa og gilda þeir um alla vöruflutninga félagsmanna Landvara, félags íslenskra vöruflytjenda, frá og með 1. janúar árið 2000.

Flutningur

1. gr. Flutningur er öll vara sem sendandi afhendir til flutnings og skiptir ekki máli stærð, þyngd eða tegund vörunnar, og ekki heldur hvar eða hvernig varan er afhent.

Frágangur flutnings

2. gr.  Sendandi flutnings skal ganga frá skjölum, umbúðum og merkingum á umbúðir á fullnægjandi hátt í samræmi við lög, reglur og flutningaskilmála þessa.

3. gr.  Öll skráning sendanda á fylgibréf, fylgigögn, umbúðir og upplýsingar um meðferð, skulu vera skýrar og greinilegar í samræmi við flutninginn.

Vörufylgibréf

4. gr.  Á vörufylgibréf skal skrá allar nauðsynlegar upplýsingar um flutninginn í samræmi við forritaðar leiðbeiningar á vörufylgibréfinu sjálfu, gírókröfureglur eða flutningaskilmála þessa.  Vel og rétt útfyllt fylgibréf losar sendanda ekki undan skyldum sínum um að merkja umbúðir í samræmi við flutningaskilmála þessa.

5. gr.  Sendandi skal á vörufylgibréfinu alltaf gefa upp stykkjafjölda flutningsins og brúttóþyngd með öllum umbúðum í kílóum eða rúmmál flutningsins í rúmmetrum.

6. gr.  Ef flutningur er rúmfrekur og léttur gilda verðskrár sem taka mið af rúmmáli en ekki vigt.

Umbúðir

7. gr.  Allur flutningur skal vera í viðeigandi og nauðsynlegum umbúðum til þess að flutningurinn hvorki skemmist við eðlilega meðhöndlun né hann valdi tjóni.

Opnar eða rifnar umbúðir, endurnotaðar umbúðir með röngum eða villandi merkingum frá fyrri notkun og óhreinar eða rakar umbúðir sem geta valdið óþrifum, teljast ekki fullnægjandi umbúðir í þessu sambandi.

8. gr.  Sérstaklega skal búa vandlega um og merkja á viðeigandi hátt brothættan og viðkvæman flutning, vökva, flutning sem ekki má blotna, þolir ekki högg eða getur valdið hættu við efnahvörf.

9. gr.  Ef flutningur er umbúinn með óvenjulegum hætti, óreglulegur, veldur erfiðleikum í meðhöndlun í vöruhúsi við lestun eða í flutningi, hefur flytjandi heimild til þess að rjúfa umbúðir og koma flutningnum fyrir á þann hátt sem hann telur henta best í hverju tilviki.


Merkingar á umbúðir

10. gr.  Viðtakanda, nafn, heimili og stað,  skal skrá skýrt og greinilega á aðalhlið flutnings, einhverja úthlið eða topp umbúðanna.  Sérstök áhersla er lögð á að staðarnafnið sé áberandi og með stærra letri en nafn og heimili.

Símanúmer viðtakanda er einnig afar vel þegið, t.d. á eftir heimilisfangi,  þótt þess sé ekki krafist skilyrðislaust.  Símanúmerið er aukin trygging fyrir öruggum flutningi og skjótri afgreiðslu sendingarinnar.

11. gr.  Nota skal sérstaka merkimiða á umbúðir flutnings þegar slíkt á við til þess að tryggja að varan berist viðtakanda, að hún fái rétta meðferð í flutningi eða til að koma í veg fyrir að varan valdi tjóni.   Ef sérstakir merkimiðar eru ekki tiltækir, skal sendandi eigi að síður skrá nauðsynlegar merkingar og auðkenna flutninginn í samræmi við framangreint.

Allar varúðarmerkingar eða áritanir á umbúðir skal alltaf skrá á sömu aðalhlið og viðtakandi er skráður.  Sendandi getur einnig sett varúðarmerkingar á aðrar hliðar flutningsins ef honum sýnist svo, en þá skal hann alltaf leggja áherslu á að lesmálið snúi rétt miðað við botninn niður.

12. gr.  Sé flutningur í mörgum stykkjum skal sendandi merkja öll stykki með sama hætti á sömu hlið og viðtakandi er skráður, skrá upplýsingar um stykkjafjölda, innihald eða varúðarfyrirmæli.


13. gr.  Stykkjafjölda skal einkenna með því að skrá stykkjafjöldann á öll stykki flutningsins og gera hring um fjöldatöluna.   Dæmi:   Ef flutningur er 4 stykki skal skrá töluna 4 með hring utan um á öll stykkin á sömu hlið og viðtakandi er skráður.


14. gr.  Þegar umbúðir eru endurnotaðar skal sendandi fjarlægja af þeim allar fyrri ónauðsynlegar og villandi flutningsleiðbeiningar, varúðarmiða og merkingar.

Sendandi skal gæta þess sérstaklega að öll flutningsfyrirmæli sem eiga við um flutninginn séu a.m.k. skráðar á sömu hlið flutningsins og viðtakandi er skráður.

Hættuleg efni

15. gr.
  Þegar flutningur er hættulegt efni samkvæmt gildandi ADR reglum, skal sendandi ganga frá merkingum og fylgiskjölum, flutningsslysakorti, samkvæmt þeim reglum sem um viðkomandi flutning gilda.

16. gr.  Ef flutningur er ekki hættulegt efni samkvæmt ADR reglum en getur samt sem áður valdið hættu við efnahvörf, hita, kulda, högg eða annað, hverju nafni sem nefnist, skal sendandi merkja umbúðir með viðeigandi hætti, merkimiðum eða áritun, og láta fylgja flutningnum leiðbeiningar um meðferð flutningsins og hættuna sem af honum kann að stafa.


Móttöku neitað

17. gr.  Neiti viðtakandi að veita flutningi móttöku, skal flytjandi hafa samband við sendanda og gera honum grein fyrir stöðu málsins og óska skriflegra fyrirmæla innan 7 daga um framhald þess.

Berist flytjanda ekki ný flutningsfyrirmæli innan tilskilins frests má hann án frekari aðgerða endursenda flutninginn á kostnað sendanda.

Takmarkað geymsluþol

18. gr.  Hafi flutningur takmarkað geymsluþol eða hafi varan annmarka á geymslu yfirleitt, hefur flytjandi rétt til að endursenda flutninginn um leið og hann telur að lengri geymsla geti valdið skemmdum eða tjóni.

Flytjandi skal þó í öllum tilvikum hafa samband við sendanda um framkvæmd málsins.


Flutningur ekki sóttur

19. gr.  Sé flutningur ekki sóttur innan 7 daga frá því að viðtakanda var tilkynnt um flutninginn, hefur flytjandi rétt til þess að endursenda vöruna.

Flytjandi skal þó alltaf hafa samband við sendanda og upplýsa hann um stöðu málsins og fyrirætlanir sínar.  Flytjandi skal einnig skora á sendanda að gefa ný fyrirmæli um vilja sinn í málinu.

Stefnt er að því að útbúa og nota forprentuð stöðluð blöð, þar sem viðtakandi getur staðfest synjun sína á móttöku og flytjandi getur skráð inn upplýsingar um flutninginn, stöðu málsins og fyrirætlanir sínar.  Sendandi getur síðan á sama blaði merkt við vilja sinn í málinu.

20. gr.  Flytjandi sem tilkynnt hefur sendanda um ósóttan flutning hefur fullan og ótakmarkaðan rétt til þess að endursenda vöru, þegar 7 dagar eru liðnir frá tilkynningu hans til sendanda, enda hafi sendandi ekki á þeim tíma sinnt áskorun flytjanda um að gefa upp vilja í málinu.

Endursendur flutningur

21. gr.  Sendandi flutnings sem hefur verið endursendur ber fulla og ótakmarkaða ábyrgð á flutningskostnaði fram og til baka og geymslugjöldum í vöruhúsum á báðum endum sé þeirra krafist.

22. gr.  Ef sendandi sækir ekki hinn endursenda flutning innan 7 daga frá því að honum berst tilkynning um endursendinguna, hefur flytjandi fullan og ótakmarkaðan rétt til þess að koma flutningnum í varanlega geymslu, farga honum, eyða eða flytja í húsnæði sendanda, allt á hans kostnað og í samræmi við eðli og tegund flutningsins hverju sinni.

23. gr.  Ef sendandi sækir ekki hinn endursenda flutning innan 30 daga frá því að honum barst tilkynning um endursendinguna og hann sinnir ekki ítrekuðum áskorunum flytjanda um að sækja flutninginn hefur flytjandi fullan og ótakmarkaðan rétt til þess að farga flutningnum, selja hann til greiðslu áfallins kostnaðar eða grípa til einhverra annarra úrræða til að firra sig ábyrgð, kostnaði og óþægindum sem af hinum endursenda flutningi kann að stafa.


Geymslugjöld

24. gr.  Ef flutningur er ekki sóttur af viðtakanda innan 7 daga frá tilkynningu flytjanda um vörusendingu, falla á 8. degi geymslugjöld á flutninginn frá og með komudegi í vörugeymslu flytjanda.


25. gr.  Ef endursendur flutningur er ekki sóttur af sendanda innan 7 daga frá tilkynningu flytjanda um endursendinguna, falla á 8. degi geymslugjöld á flutninginn frá og með komudegi í vörugeymslu flytjanda í heimabyggð sendanda, en auk þess ber sendandi fulla og ótakmarkaða ábyrgð á geymslugjöldum í heimabyggð viðtakanda.


Útlit síðu:


banner1

Þetta vefsvæði byggir á Eplica