Skilmálar fylgibréfa Landflutninga-Samskipa
Flutningar á landi
Um ábyrgð flytjanda gilda ákvæði íslenskra laga, lög nr. 40 18 maí 2010 og flutningaskilmálar Landvara, félags íslenskra vöruflytjenda.
Þar segir m.a. :
Ábyrgð móttakanda
Móttakandi skal sækja vöruna eins fljótt og auðið er eftir að honum er kunnugt um að varan sé tilbúin til afhendingar.
Vilji móttakandi krefjast bóta fyrir hvarf eða skemmdir á vöru ber honum að tilkynna flytjanda það án tafar. Tilkynningin skal skráð í fylgibréfi eða send bréflega.
Ábyrgð sendanda
Sendandi ber ábyrgð á, að þær upplýsingar, sem tilgreindar eru í fylgibréfi og merkingu vöru, séu réttar. Hann er ábyrgur fyrir kostnaði eða tjóni sem hlýst af því, að upplýsingarnar eru rangar, ónákvæmar, ógreinilegar eða að öðru leyti ófullkomnar.
Ábyrgð flytjanda
Skaðabætur fyrir skemmda eða glataða vöru skulu ákvarðast af því verðgildi, sem varan hefði haft ósködduð við afhendingu til flytjanda. Flytjanda verður þó aldrei gert að greiða hærri skaðabætur en sem nema ákveðinni krónutölu pr. brúttókílógramm.
Flytjandi er undanþeginn ábyrgð á tjóni, sem orsakast af eftirgreindum ástæðum :
1. Vanrækslu eða mistökum sendanda eða móttakanda eða umboðsmanna þeirra.
2. Skemmdum vegna ófullnægjandi ytri eða innri umbúða, eða vegna sérstakra eiginleika vörunnar, sem flytjanda var ekki kunnugt um eða gat ekki varast.
3. Hvarfi, rýrnun eða skemmdum á vörunni sem rekja má til lestunar, röðunnar eða losunar, sem sendandi eða móttakandi hafa annast að öllu leyti eða að hluta.
4. Röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um vöruna í fylgibréfi.
5. Alvarlegum, ófyrirsjáanlegum atburðum (force majeure), s.s. náttúruhamförum, uppþoti og verkföllum.
6. Flutningur ekki sóttur. Sé flutningur ekki sóttur innan 30 daga frá því að viðtakanda var tilkynnt um flutninginn, hefur flytjandi rétt til þess að endursenda vöruna.
Endursendur flutningur
Ef sendandi sækir ekki hinn endursenda flutning innan 7 daga frá því að honum berst tilkynning um endursendinguna, hefur flytjandi fullan og ótakmarkaðan rétt til þess að koma flutningnum í varanlega geymslu, farga honum, eyða eða flytja í húsnæði sendanda, allt á hans kostnað og í samræmi við eðli og tegund flutningsins hverju sinni.
Athygli er á því vakin að vörur eru ekki sjálfkrafa tryggðar í flutningum. Tryggið vöruna hjá tryggingarfélagi ykkar eða leitið upplýsinga hjá starfsfólki okkar.
Flutningar á sjó
Um ábyrgð og skyldur flytjanda gilda ákvæði íslenskra laga, York-Antwerpenreglunnar frá 1980 og skilmálar og reglur hlutaðeigandi skipafélags.
Flutningar í lofti
Um ábyrgð flytjanda gilda ákvæði íslenskra laga, ákvæði Varsjársáttmálans, lög um loftferðir nr. 34/1964, skilmálar og reglur hlutaðeigandi flugfélags, og þær reglur sem hlotið hafa samþykki flugmálastjóra hinn 22. janúar 1965.

