Vöruvantanir og tjónamál
Vöntun í sendingu
Þegar uppgefinn fjöldi á fylgibréfi og vörumagn fer ekki saman við afhendingu, er talað um vöntun.
Tilkynning um vöruvöntun þarf að hafa borist umsjónarmanni vantana á Landflutningum í síma 458 8421 innan 48 klst frá brottför flutningabíls frá stöð.
Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um vöntun og þarf því móttakandi að tilkynna vöntun til hans sem allra fyrst og eigi síðar en innan 48 klst.
Ábyrgðartilflutningur á sér stað á öllum stigum ferilsins.
- Við móttöku vöru á Landflutningum færist ábyrgð yfir á Samskip.
- Við lestun flutningabíls færist ábyrgð yfir á flutningsaðila.
- Við losun á bíls á afgreiðslu út á landi færist ábyrgð yfir á viðk. afgr.
- Við afhendingu vöru flyst ábyrgð yfir á viðtakanda.
Landflutningar-Samskip reyna að leysa úr öllum vöntunarmálum eins fljótt og auðið er. Viðmiðunin er að reyna að leysa úr málum einstaklinga á 2 - 5 dögum en mál fyrirtækja geta tekið 1 - 3 vikur. Leysist málið ekki telst það orðið tjónamál.
Þegar Landflutningum-Samskipum er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.
- Afrit fylgibréfs
- Staðfesting yfirmanns á Landflutningum eða öðrum afgreiðslum Landflutninga-Samskipa.
- Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda til staðfestingar á verðmæti sendingar.
ATH: vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.
Tjónamál
Tjón telst hafa orðið hafi vara skemmst í meðförum starfsmanna Samskipa eða orðið fyrir skemmdum í flutningum.
Vöruvantanir sem ekki hefur tekist að leysa teljast tjónamál eftir ákveðinn tíma.
Um tjón þarf að gera athugasemd við afhendingu vöru og á það við á öllum stigum ferilsins.
- Við móttöku á Landflutningum.
- Við lestun á flutningabíl.
- Við losun á afgreiðslu.
- Við endanlega vöruafhendingu.
Móttakandi vöru þarf að gera athugsemd vegna tjóns um leið og varan er afhent honum af flutningsaðila. Flutningsaðili útbýr þá tjónaskýrslu sem hann sendir umsjónamanni tjónamála hjá Landflutningum-Samskipum. Áskilinn er réttur til að kalla til tjónaskoðunarmann frá tryggingarfélagi sé þess talin þörf.
Landflutningar-Samskip reyna að leysa öll tjónamál eins fljótt og auðið er. Þykir sannað að varan hafi skemmst í meðförum Landflutninga-Samskipa er miðað við að leysa úr málum einstaklinga á 2 - 5 dögum og málum fyrirtækja á 1 - 3 vikum. Tryggingamál geta þó dregist lengur.
Þegar Landflutningum-Samskipum er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.
- Afrit fylgibréfs.
- Staðfesting rekstrarstjóra á Landflutningum eða yfirmanns á afgreiðslum Landflutninga - Samskipa.
- Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda, til staðfestingar á verðmæti sendingar.
ATH: Vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.
Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu.
Nánari upplýsingar veitir tjónadeild í síma 458 8321, gunnlaugur.jonsson@samskip.com

