Breyttur opnunartími á Akureyri
Undanfarin ár hafa Landflutningar-Samskip á Akureyri haft vöruafgreiðslu opna frá kl. 08.00 -12.00 á laugardögum. Þörfin fyrir slíka opnun hefur minnkað verulega en álag í staðinn aukist til muna seinni hluta vikunnar, á fimmtudögum og föstudögum.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að fella niður laugardagsopnun frá og með 19. ágúst nk. Eftir það verður eingöngu um samningsbundna dreifingu innanbæjar að ræða.
Opnunartíminn verður endurskoðaður í desember og einnig ef forsendur breytast.
Ef frekari upplýsinga er óskað, vinsamlegast hafið samband við verkstjóra vöruhúss í síma 458 8920 eða 858 8920.

