Rekstur Sæfara áfram hjá Samskipum

Samningur Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur um eitt ár. Ný ferja, sem er verið að standsetja, verður tekin í notkun á samningstímabilinu.

Sæfari hefur siglt undir merkjum Landflutninga-Samskipa í 10 ár og er rekstur ferjunnar hluti af innalandskerfi félagsins. Áætlunarsiglingar eru milli Dalvíkur og Grímseyjar þrisvar í viku og tvisvar í viku á milli Dalvíkur og Hríseyjar.

"Rekstur Sæfara hefur gengið mjög vel og hafa flutningarnir aukist ár frá ári frá því að við tókum við ferjunni 1996. Hún er hins vegar orðin 28 ára gömul og því orðið brýnt að fá nýrra og stærra skip til að sinna þessum siglingum," segir Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri innanlandssviðs hhjá Samskipum.

Sæfari siglir milli Dalvíkur og Grímseyjar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum en á þriðjudögum og fimmtudögum á milli Dalvíkur og Hríseyjar. Farþegar með ferjunni fyrstu átta mánuði þessa árs voru 2.600 talsins, sem er svipaður farþegafjöldi og á sama tímabili í fyrra. Vöruflutningar jukust hins vegar á sama tímabili um ríflega fimmtung milli ára.


Útlit síðu:


banner10

Þetta vefsvæði byggir á Eplica