Landflutningar-Samskip gefa kæligám til Björgunarsveitarinnar Hafliða
Landflutningar-Samskip færðu nýlega Björgunarsveitinni Hafliða 40 feta kæligám að gjöf. Er gámurinn ætlaður til geymslu á eldsneyti og fleiru fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og er hann forsenda þess að hægt sé að geyma eldsneytið með viðunandi hætti.

