Styttri biðtími hjá Landflutningum-Samskipum
Að undanförnu hafa farið fram mælingar á biðtíma viðskiptavina eftir afgreiðslu hjá Landflutningum-Samskipum. Skemmst er frá því að segja að mælingar hafa sýnt að umtalsverður árangur hefur náðst og biðtími viðskiptavina aldrei verið styttri.
Að sögn Kristjáns Tryggva Högnasonar, deildarstjóra vöruhúsadeildar hjá Samskipum, er stöðugt verið að vinna að því að minnka biðtíma við afgreiðslu og bæta þannig þjónustu við viðskiptavini. "Við erum alltaf að leita leiða til að lágmarka bið og afhenda vöruna eins hratt og örugglega og mögulegt er" segir Kristján.
Nýjustu mælingar sýna að 77% viðskiptavina fá afgreiðslu á vörupalli innan tveggja mínútna og rúm 96% innan fjögurra mínútna. Þetta er umtalsverður árangur frá síðustu mælingum. "Þetta er vissulega gleðiefni og sýnir að breytingar á vinnutilhögun og skipulagsbreytingar sem við höfum staðið í eru að skila sér beint til viðskiptavina og nú er bara að gera enn betur" segir Kristján að lokum.

