Ný afgreiðsla Landflutninga á Reyðafirði
Landflutningar-Samskip á Austurlandi hafa opnað nýja vöruafgreiðslu á Reyðarfirði. Er opnun afgreiðslunnar liður í að auka þjónustu við viðskiptavini á svæðinu en umfang flutninga hefur aukist mjög á undanförnum misserum.
Afgreiðslan er staðsett að Leiruvogi 2 og er símanúmerið 458 8840 og faxnúmerið 458 8104. Ásgrímur Ásgrímsson aðstoðarrekstrarstjóri hefur yfirumsjón með nýju afgreiðslunni.

