Bílstjóraráðstefna á Akureyri
Árlega er haldin bílstjóraráðstefna hjá Landflutningum-Samskipum, bæði í Reykjavík og á Akureyri, en 27. apríl síðastliðinn var hún haldin á Akureyri í húsakynnum Menntaskólans á Akureyri. Ráðstefnan er haldin með það í huga að auka upplýsingaflæði til bílstjóra og fara yfir þau mál sem tengjast vöruflutningum á Íslandi þá stundina. Akstursdeild Landflutninga stendur að henni með aðstoð gæðastjóra, öryggistjóra og rekstrarstjóra viðhaldsdeildar. Einnig koma gestir með erindi og að þessu sinni komu fulltrúar frá VÍS og Samtökum verslunar og þjónustu.
Ráðstefnan var í alla staði vel heppnuð og mæting góð að sögn Óskars Jenssonar rekstrarstjóra Landflutninga-Samskipa á Akureyri.

