Landflutningar-Samskip á Ísafirði 10 ára
Laugardaginn 2. júní var haldin afmælis- og fjölskylduhátíð Landflutning-Samskipa á Sjúkrahússtúninu á Ísafirði í tilefni af 10 ára afmælis félagsins á Vestfjörðum. Bílar Landflutninga voru til sýnis á svæðinu og boðið var upp á grillaðar pylsur og nammi. KFÍ sá um þrautabraut fyrir krakkana og að auki var á staðnum hoppukastali sem vakti mikla kátínu.
Rjómablíða var á Ísafirði um helgina og skemmtu gestir sér vel í sólinni.

