Flutningafyrirtæki innan SVÞ efna til kynningarátaks:

"Við erum á ferðinni fyrir þig", er yfirskrift kynningarátaks sem flutningafyrirtæki innan SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu hafa hrundið af stað og sem standa mun næstu mánuði. Þeir sem ferðast um þjóðvegi landsins á næstunni munu varla komast hjá því að verða varir við átakið því um eitt hundrað flutningavagnar í eigu nokkurra stærstu vörudreifingaraðila landsins munu skarta áberandi skilaboðum, sem eiga að minna vegfarendur á gildi flutninga fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu. Aðildarfyrirtæki og samtök flutningasviðs SVÞ standa að baki átakinu: Eimskip, Samskip, Pósturinn, Olíudreifing, Skeljungur, Icelandair Cargo, Landvari og Landssamband vörubifreiðaeigenda. Það var Kristján L. Möller samgönguráðherra sem hóf átakið með formlegum hætti þegar hann afhjúpaði merkingar á fyrsta bílnum við stutta athöfn við Perluna í Öskuhlíð í dag.


Radherra_lokarÖflugir flutningar forsenda byggðar

Með kynningarátakinu vilja flutningafyrirtæki innan SVÞ minna á þá staðreynd að vöru-flutningabílarnir eru á ferðinni fyrir fólkið og atvinnulífið í landinu og að öflugir landflutningar eru forsenda þess að atvinnulíf og byggð geti þrifist um allt land.

Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs SVÞ segir við hæfi í upphafi sumars þegar umferð ferðafólks um þjóðvegi landsins fer að aukast að koma þessum skilaboðum á framfæri við vegfarendur. Með því sé meðal annars verið að bregðast við neikvæðri umræðu um vöruflutninga sem of mikið hafi borið á undanfarin misseri. "Ég held að það sé nauðsynlegt að minna á hlutverk flutningabílanna - hvað þeir eru að gera þarna úti á þjóðvegunum. Við vitum öll að varan sem við kaupum í verslunum um land allt verður ekki til þar. Við vitum líka að fiskurinn sem fluttur er með flugi og seldur háu verði á markaði erlendis flytur sig ekki sjálfur frá framleiðanda á flugvöll.
DSCN0086Flutningabílarnir sem við mætum eru einfaldlega nauðsynlegur hluti í gangverki samfélagsins - þessu átaki er ætlað að minna á það," segir Signý. Hún bendir jafnframt á að forsenda þess að til dæmis lágvöruverðsverslanir geti haldið úti starfsemi á landsbyggðinni eru örir flutningar. Greiðir og öruggir vöruflutningar tryggja að hægt er að bjóða upp á nægt framboð af ferskri vöru á hagstæðasta verði sem völ er á hverjum tíma.


Útlit síðu:


banner5

Þetta vefsvæði byggir á Eplica