Þjónustustaðlar í innanlandsflutningum
Færst hefur í vöxt að sendingar berist í hús síðar en klukkustund fyrir brottför ferða og af því tilefni er minnt á þjónustustaðla landflutninga-Samskipa. Brýnt er að farið sé eftir þeim til þess að tryggja að vörusendingar berist á áfangastaði innan settra tímamarka.
Mikilvægt er að hafa í huga að ef vörusending berst síðar en klukkustund fyrir brottför áætlunarferðar er ekki hægt að tryggja að sendingarnar fari í áætlunarferðina samdægurs, enda tíminn knappur milli brottfarar og móttöku.

