Ferli við sjóflutningsbókanir innanlands
Reykjavík-Reyðarfjörður
Borið hefur á því að undanförnu að vörusendingar til sjóflutnings innanlands hafa borist Samskipum án bókunarfyrirmæla og hefur það orsakað tafir á flutningi til móttakenda.
Til þess að tryggt sé að vörusendingar bókist rétt er mikilvægt að allar upplýsingar um sendinguna fylgi og viðeigandi gögn ásamt sendingunni sjálfri skili sér innan settra tímamarka. Sjóflutningsbókanir og tilkynningar vegna ósóttra gáma þurfa að berast eigi síðar en fyrir lokun á föstudögum kl. 16.00. Lokunartími vöruafhendingar miðast við kl. 12.00 á mánudögum fyrir brottför skips.
Athugið að þjónustustaðlar vegna heimaksturs eru á þann veg að sé akstur pantaður fyrir hádegi er pöntunin afgreidd eftir hádegi sama dag. Ef akstur er pantaður eftir hádegi er pöntunin afgreidd fyrir hádegi næsta virka dag. Sé óskað eftir gámi til lestunar á höfuðborgarsvæðinu þarf beiðni um tóman gám að berast eigi síðar en eftir hádegi á fimmtudögum og tilkynning um innmiða eigi síðar en fyrir lokun á föstudögum.
Sérstök athygli skal vakin á því að beiðnir um bókanir þurfa að berast skriflega áður en vara er afhent til Samskipa svo að vörumóttaka geti átt sér stað í Reykjavík.
Eyðublað vegna sjóflutningsbókana og aksturs þegar það á við
Bókunum skal beina til söludeildar innanlandssviðs í gegnum netfangið thjonustudeild@landflutningar.is
Nánari upplýsinga um akstursbeiðnir og sjóflutningsbókanir sem og frekari aðstoð veita þjónustufulltrúar í söludeild:
Bengta María Ólafsdóttir
Sími 458 8213
Netfang: bengta.maria.olafsdottir@samskip.com
Lára Dís Albertsdóttir
Sími 458 8214
Netfang: lara.dis.albertsdottir@samskip.com

