52 erlendir starfsmenn luku námskeiðum í íslensku
Þann 26. nóvember lauk þremur 40 stunda námskeiðum í íslensku fyrir starfsfólk af erlendum uppruna, sem öll farið hafa fram hjá Samskipum. Það var Brynja Grétarsdóttir kennari frá Alþjóðahúsinu sem sá um kennsluna. Námskeiðin hófust þann 19. september og var kennt á vinnutíma þrisvar sinnum í viku. Það voru stoltir nemendur sem tóku við viðurkenningu úr hendi kennara síns þar sem haldið var upp á lokin með kökuveislu.
Tveir byrjendahópar og einn stór framhaldshópur sóttu námskeiðin að þessu sinni.

