Breytingar í Borgarnesi

Einar Páll Pétursson, sem rekur fyrirtækið VV flutninga, hefur tekið við rekstri afgreiðslu Landflutninga-Samskipa í Borgarnesi. Einar Páll hefur til margra ára annast akstur Landflutninga-Samskipa á áætlunarleiðinni á milli Reykjavíkur og Borgarnes ásamt akstri í nágrannasveitir og mun frá áramótum jafnframt annast móttöku og afgreiðslu á sendingum í Borgarnesi. Ekki er gert ráð fyrir að breytingar verði á þjónustustigi Landflutninga-Samskipa í Borgarnesi og væntum við í framtíðinni góðs af samstarfi við Einar Pál sem hingað til.


Útlit síðu:


banner12

Þetta vefsvæði byggir á Eplica