Breyting á gjaldskrá Landflutninga - Samskipa

Mánudaginn 1. september nk. hækkar almenn gjaldskrá Landflutninga - Samskipa um 5,5%. Ástæðan fyrir því er aukinn innlendur rekstrarkostnaður og hækkandi meðhöndlunarkostnaður.

Að mati Landflutninga eru forsendur fyrir enn frekari hækkunum á gjaldskrá, en þess í stað hefur verið ákveðið að taka upp nýtt stykkjagjald frá og með sama tíma, þ.e.a.s. 107 kr. fyrir hverja flutningseiningu á fylgibréfi umfram þá fyrstu. Með því móti geta viðskiptavinir Landflutninga haft áhrif á flutningsgjöld til lækkunar með því að sameina og fækka flutningseiningum.

Nánari upplýsingar veita:

Bryndís Ásta Reynisdóttir, viðskiptastjóri, sími 4588211, bryndis.asta.reynisdottir@samskip.com

Ingi Þór Hermannsson, forstöðumaður Landflutninga, sími 4588650, ingi.thor.hermannsson@samskip.com


Útlit síðu:


banner2

Þetta vefsvæði byggir á Eplica