Herjólfur í slipp, St. Ola leysir hann af

MS Herjólfur mun fara í slipp mánudaginn 29. september og verður frá siglingum milli lands og eyja, til og með miðvikudagsins 8. október. St. Ola mun leysa Herjólf af þessa daga.
Vegna breyttra aðstæðna verður ekki hjá því komist að takmarka öxulþunga vagna og tækja sem í skipið fara við 7 tonn. Geta bílstjórar verið krafðir um vigtarnótu þegar við á. Hæð ökutækja takmarkast við 4,2 metra.

St. Ola rúmar mun fleiri bíla og tæki en Herjólfur, þannig að hægt verður að sinna allri venjulegri flutningsþörf.


Útlit síðu:


banner3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica