Íslenskur ullarfatnaður til Bretlands
Samstarf hefur tekist milli Bylgjunnar, Landflutninga - Samskipa og Jóna Transport að safna íslenskum ullarfatnaði á landinu og senda til þurfandi eldri borgara á Bretlandi sem búa við erfiðar aðstæður vegna kulda.
Tekið er á móti fatnaðinum á skrifstofum Landflutninga um land allt svo og í afgreiðslu Landflutninga í Kjalarvogi.
Skal fatnaðinum pakkað í plast og í pappakassa sem Oddi og Plastprent leggja verkefninu til.
Samskip sigla gámnum til Immingham í Bretlandi og sjá Jónar Transport um alla pappírsvinnu vegna verkefnisins.
Bylgjan ¿ Kolla og Heimir ¿ munu taka á móti gámnum í Immingham og afhenda fatnaðinn samtökum eldri borgara sem sjá um dreifingu hans.
Átakinu verður fylgt eftir á Bylgjunni meðan söfnun stendur yfir og þar til fatnaðurinn er kominn til áfangastaðar og vonandi kemur í veg fyrir að fólk deyi úr kulda.
Söfnunin hefst 15. janúar og síðasti móttökudagur er 20.janúar. Gert er ráð fyrir að afhenda lopapeysurnar 26.janúar.

