Síðasti dagur ullarvörusöfnunarinnar
Í dag, þriðjudag, er síðasti dagurinn sem tekið er á móti íslenskum ullarvörum til handa eldri borgurum í Bretlandi. Söfnunin hefur gengið vel og mikið magn af ullarflíkum borist afgreiðslu Landflutninga í Kjalarvoginum.
Afgreiðsla Landflutninga er opin til kl. 16.00 í dag.
Gámurinn verður fluttur til Bretlands þar sem Kolla og Heimir á Bylgjunni taka á móti honum og afhenda samtökum eldri borgara í Bretlandi.

