Breytingar á gjaldskrá og þjónustu Landflutninga-Samskipa

Frá og með 1. febrúar nk. mun almenn gjaldskrá Landflutninga hækka að jafnaði um 9,4%. Þjónustugjald og flutningseiningagjald hækka samsvarandi frá þeim tíma.
Við bendum á að nýja og uppfærða verðskrá er að finna hér.

Vegna gámaaksturs munu Landflutningar frá 1. febrúar nk. innheimta leigu fyrir gámagrindur sem standa hjá viðskiptavinum umfram tvo daga að þeirra ósk. Verð á hvern hafinn sólarhring er 3.000 kr. án vsk.

Frá og með 15. febrúar nk. mun jafnframt verða tekið upp sérstakt breytingagjald, kr. 150 á fylgibréf. Gjald þetta verður innheimt ef útfylling fylgibréfa er ófullnægjandi eða þeim breytt að ósk viðskiptavina.

Ástæður þessara gjaldskrárbreytinga má fyrst og fremst rekja til óhagstæðrar verðlags-og vaxtaþróunar.

Frá og með 15. febrúar nk. munu Landflutningar hætta að meðhöndla sendingar í gírókröfu.


Útlit síðu:


banner14

Þetta vefsvæði byggir á Eplica