Farmtryggingar í landflutningum
Landflutningar-Samskip og Sjóvá – Almennar tryggingar hafa undirritað samning til hagsbóta fyrir viðskiptavini Landflutninga. Með samningnum eru allar vörur sem fluttar eru með Landflutningum tryggðar. Miðast tryggingaverndin við verðmæti varnings allt að kr. 10.000.000. Fari verðmæti vöru upp fyrir kr. 10.000.000 þarf að tryggja þær sérstaklega.
Vörurnar eru tryggðar samkvæmt vátryggingaskilmálum flutningstrygginga Sjóvar - Almennra trygginga. Vegna þessarar tryggingaverndar hækkar þjónustugjald félagsins (vegna flutninga) fyrir hverja sendingu um kr. 100, með vsk., og verður alls kr. 390.
Fyrir 100 króna viðbótarkostnað á sendingu fær farmeigandinn tryggingu sem er vel umfram þær bætur sem honum eru tryggðar í lögum um farmflutninga.
Tryggingaverndin tók gildi þann 15. júní sl. og vonast Landflutningar eftir því að þessi þjónusta muni mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum félagsins.
Hér finnur þú skilmála farmtrygginga í innanlandsflutningi.

