Aftakaveður gengur yfir landið
Aftakaveður gengur nú yfir landið og hefur víða valdið usla á sunnanverðu landinu. Akstur á höfuðborgarsvæðinu hefur þó gengið ágætlega og standa vonir til að ekki verði miklar tafir á áætlunarakstri í dag, föstudag. Gert er ráð fyrir að veður gangi norður yfir land þegar líður á daginn en nánari upplýsingar um veður má finna á vef Veðurstofunnar.

