Breytt áætlun til og frá Hólmavík

251-5136_IMGBreytingar hafa orðið á áætlun til og frá Hólmavík þar sem nýr vegur um Arnkötludal hefur verið tekinn í notkun.  Áætlunarferðir verða tvær eftir sem áður, brottför frá Hólmavík á mánudögum og miðvikudögum, brottför frá Reykjavík á þriðjudögum og fimmtudögum.
Breytingin sem verður nú og tekur að fullu gildi mánudaginn 12. október, felur í sér að áætlunarferðir verða hér eftir um Arnkötludal og Bröttubrekku en þó mun verða farin ein ferð á viku um vestanverðan Hrútafjörð á leið norður Strandir. Sú ferð kemur til með að verða á fimmtudögum.
Hægt er að nálgast upplýsingar um áætlun til Hólmavíkur hér.


Útlit síðu:


banner13

Þetta vefsvæði byggir á Eplica