Verðskrá Landflutninga til norðanverðra Vestfjarða lækkar um allt að 12%
Í tengslum við styttingu þjóðvegar til norðanverðra Vestfjarða hefur almenn verðskrá Landflutninga til og frá svæðinu verið endurskoðuð. Munu gjaldflokkar lækka um allt að 12,0% frá og með 1. nóvember 2009.
Landflutningar-Samskip vilja nota tækifærið og óska Vestfirðingum til hamingju með nýja veginn og óska þeim jafnframt góðrar ferðar um Arnkötludalinn!
Smelltu hér til að skoða nýja gjaldskrá Landflutninga-Samskipa

