Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði

reydarfjordur_ny_afgrLandflutningar-Samskip á Reyðarfirði hafa flutt sig um set.  Við fórum þó ekki langt, aðeins yfir götuna þar sem heildverslunin Stjarnan var áður til húsa. Nýja húsnæðið er mun stærra og betra og skapast tækifæri fyrir Landflutninga að bjóða viðskiptavinum sínum á Austfjörðum betri þjónustu við geymslu á vörum, þ.m.t. á kæli- og frystivöru.
Þess má einnig geta að Landflutningar hafa tekið við afgreiðslu Ísaga á Reyðarfirði.

Við bjóðum Reyðfirðinga og Austfirðinga alla velkomna á nýjan stað en nýja heimilisfangið er:

Landflutningar-Samskip
Nesbraut 10
730 Reyðarfjörður
Sími: 458 8840
Fax: 458 8104
landflutningar@landflutningar.is 

Opnunartími alla virka daga frá kl. 9.00 – 16.00.

 


Útlit síðu:


banner4

Þetta vefsvæði byggir á Eplica