"Á ferðinni fyrir þig" til Danmerkur og Bretlands
Það var sumarið 2007 að Landflutningar tóku þátt í kynningarherferð SVÞ (Samtök verslunar og þjónustu) sem fékk nafnið “Á ferðinni fyrir þig”. Stórar auglýsingamyndir voru settar aftan á flutningabíla sem tengdust slagorðinu. Tilgangurinn var að vekja athygli á mikilvægi flutninga á landi og að það væri þjóðhagslega mikilvægt að slíkir flutningar væru tíðir og áreiðanlegir.
Herferðin mæltist svo vel fyrir að hún var framlengd út sumarið 2008.
En herferðin vakti athygli víðar en bara á Íslandi. Fyrst voru það frændur okkar Danir sem óskuðu eftir að fá að nota hugmyndina og nú vilja Bretar gera slíkt hið sama. Meðfylgjandi eru til gamans myndir af auglýsingunum til upprifjunar og tengill á herferð Dananna. Það er alltaf gaman þegar góð verk fá verðskuldaða athygli.
Til hamingju með það!
Danska herferðin
