Landflutningar-Samskip opna nýjan vef

470-7011_IMGLandflutningar-Samskip hafa opnað nýjan vef.  Er nýi vefurinn hnitmiðaðri í uppbyggingu og hefur þjónustunni verið skipt upp eftir því hvort um einstaklinga eða fyrirtæki er að ræða. Mun þetta stytta leið viðskiptavina að upplýsingum.  Einnig hafa nokkrar nýjungar bæst við og má helst nefna forskráningu fylgibréfa sem sendast nú rafrænt til Landflutninga áður en komið er með sendinguna.  Forskráningin styttir afgreiðslutíma hjá Landflutningum, því einungis þarf að staðfesta þyngd/ummál og ganga frá greiðslu. 

Á vefnum er jafnframt hægt að fá beint samband við þjónustufulltrúa sem getur svarað margvíslegum spurningum viðskiptavina, fundið sendingar, veitt upplýsingar um brottarartíma, verð o.fl.  Framsetning upplýsinga um brottfararstaði og áætlanir hefur auk þess verið einfölduð til muna. 

Það er von Landflutninga að nýi vefurinn mælist vel fyrir og að viðskiptavinir sjái sér hag í að nýta sér hann. 

Með kveðju,
Starfsfólk Landflutninga.


Útlit síðu:


banner8

Þetta vefsvæði byggir á Eplica