Á ferðinni fyrir þig
Vegna gossins í Eyjafjallajökli og lokunar vega um Markarfljót var farið með vörur til viðtakenda á Vík og Kirkjubæjarklaustri um Norður og Austurland. Flutningatæki Landflutninga lögðu af stað um kl. 17 í gær og voru komin á Höfn kl. 7 í morgun.
Bíll frá Vík lagði af stað snemma í morgun til þess að sækja vörurnar þangað. Vegna öskufalls lenti bílstjóri í miklum vanda og að hans sögn þurfti hann að keyra með opna rúðu í um 10 kílómetra leið til þess að greina veginn, svo slæmt var skyggnið. Í kjölfarið var veginum á milli Víkur og Klausturs lokað.
Búið er að koma vörum til viðtakenda á Kirkjubæjarklaustri og þegar þetta er ritað þá hafa Landflutningar fengið heimild til þess að aka veginn til Víkur og freista þess að koma vörunum þangað. Í bílnum er mikið af matvörum ekki síst ferskvöru fyrir íbúa Víkur og leggja starfsmenn Landflutninga sig alla fram við að tryggja að farmurinn komist til skila.
Vonir standa til að búið verði að opna þjóðveginn um Markarfljót á morgun þannig að hægt verði að þjónusta þessa staði með eðlilegum hætti en þó má búast við að þjónusta raskist eitthvað vegna öskufalls eða takmarkana á umferð af öðrum ástæðum.

