Stefnt á að koma vörum vörum til áfangastaða á gossvæðinu í dag
Þjóðvegurinn um Markarfljót er enn formlega lokaður en undanþága hefur fengist til að fara með vörur í dag. Stefnt er að koma allri þeirri vöru sem beðið hefur flutnings á áfangastaði á gossvæðinu í dag. Í morgun varð bíll frá Landflutingum á leið frá Vík að Markarfljóti frá að hverfa við Steina undir Eyjafjöllum þar sem ekki sást handa skil vegna öskufalls.

