Svavar er kominn heim

svavar_jonatanssonSvavar Jónatansson hefur á undanförnum árum verið tíður gestur á bensínstöðvum landsins, en oft kom hann í hlað í bílum Landflutninga. 

Forsaga þessara fjölda ferða Svavars um þjóðveg landsins má rekja til hugmyndar hans að ljósmynda landslagið beggja vegna þjóðvegarins út um hliðarrúður vöru og fólksflutningabifreiða árið 2007.  Síðan þá hefur hann tekið um 200 000 ljósmyndir, á nokkurra sekúndna fresti út um hliðarrúður og orðið mörgum flutningbílstjórum góðum kunnur.

Úr þessum gífurlega fjölda ljósmynda hefur hann valið um 40.000 í myndböndin Innland og Útland, en hvort um sig sýnir samfellda keyrslu eftir þjóðveginum þar sem landslagið skiptir um veður og árstíðir á fáeinum sekúndum. Þetta efni er nú komið út á DVD mynddisk ásamt aukaefni, og var ítarleg umfjöllun um verkið í Fréttablaðinu 15. júlí sl. Sjá má greinina á slóðinni

http://visir.is/myndadi-island-ur-hlidarrudum-hopferdarbila/article/2010927594112

Á heimasíðunni www.inlandoutland.com má sjá hluta úr afrakstri þessa verks í formi hreyfimynda sem og stakra ljósmynda.

Svavar þakkar Landflutningum fyrir stuðning við framkvæmd verksins, sem og öllum þeim bílstjórum sem óku með hann um landið.


Útlit síðu:


banner13

Þetta vefsvæði byggir á Eplica