Landflutningar - Samskip

Landflutningar-Samskip, innanlandsdeild Samskipa, eru þéttriðið flutningsnet með skrifstofur í öllum landshlutum og umboðsmenn um land allt. Undir vörumerkinu Landflutningar-Samskip er boðið upp á alhliða flutningaþjónustu sem nær til allra landshluta. Boðið er upp á alla almenna flutninga á vörum, búslóðum, heilförmum og gámum. Einnig er boðið upp á söfnun og dreifingu og heimakstur á vörum. Með vel útbúnum flutningabílum geta Landflutningar-Samskip tryggt viðskiptavinum sínum skjóta og örugga afhendingu á vörum hvert á land sem er.

Leitast er við að fyrirtækið sé í fararbroddi hvað varðar vöruflutninga innanlands. Starfað er eftir kröfum GÁMES og er starfsfólk Landflutninga-Samskipa þjálfað í meðferð og flutningi á hættulegum efnum. Auk þess eru strangar kröfur gerðar til öryggis á þjóðvegum.


Útlit síðu:


banner13

Þetta vefsvæði byggir á Eplica